Samantekt um þingmál

Skráningarskylda félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri

190. mál á 150. löggjafarþingi.
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að gera félög til almannaheilla skráningarskyld til að koma í veg fyrir að þau verði misnotuð í þágu brotastarfsemi.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að félög til almannaheilla, sem safna eða útdeila fjármunum í almannaþágu og eru með starfsemi yfir landamæri, verði aðgreind frá öðrum félagasamtökum og að settar verði reglur um stofnun slíkra félaga, meginefni samþykkta, stjórnun þeirra og skráningarskyldu. Lagt er til að þau félög sem falla munu undir lögin verði skráð í almannaheillafélagaskrá sem ríkisskattstjóri haldi og taki við nýskráningum þeirra, breytingum á skráningu og tilkynningum um slit, auk þess að hafa heimild til afskráningar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna verða breytingar á lögum um fyrirtækjaskrá, nr. 17/2003.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir óverulegum kostnaði fyrir ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Úttekt fjármálaaðgerðahópsins (Financial Action Task Force, FATF) á Íslandi, apríl 2018.


Síðast breytt 10.10.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.